Merkin okkar

Vörumerkin okkar eru valin af kostgæfni, eingöngu evrópskir framleiðendur sem leggja mikið upp úr gæðum, efnisvali og vottuðum efnum sem henta vel á viðkvæma húð.

Meira á leiðinni

Grödo

Grödo hefur framleitt hágæða sokka og sokkabuxur úr náttúrulegum efnum frá árinu 1924. Vörurnar eru framleiddar í Evrópu úr lífrænni ull og litaðar í Þýskalandi, með sjálfbærni, þægindi og umhverfið í fyrirrúmi. Yfir 80% af vörum Grödo eru GOTS-vottaðar.

Hocosa

Hocosa hefur framleitt hágæða grunn-fatnað í Sviss frá árinu 1886, þar sem gæði, sjálfbærni og nákvæmni eru í fyrirrúmi. Öll fötin eru gerð úr lífrænum efnum án allra eiturefna og gerviefna svo sem hreinni ull og ullar-silki blöndum og eru vörurnar GOTS-vottaðar. Ferlið virðir umhverfið og dýravelferð í hvívetna og tryggir hreinar gæðavörur fyrir þig og þína.

Engel

Engel framleiðir hágæða og vistvænan fatnað í Þýskalandi úr endurnýjanlegum, lífrænum hráefnum. Öll framleiðslan fer fram án skaðlegra eiturefna, með sjálfbærum orkugjöfum og með virðingu fyrir umhverfinu, dýrum og sanngjörnum vinnuaðstæðum. Föt sem gott er að klæðast, með hreina samvisku.