Skilmálar

Síðast uppfært: 3. október 2026

Þessir skilmálar gilda um öll kaup í netverslun Lóló Butik á lolobutik.is. Netverslunin er rekin af Leir Stúdíó ehf., kt. 670726-0370, VSK-númer 162899 (hér eftir „Lóló Butik“ eða „seljandi“). Með því að staðfesta pöntun staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér skilmálana og samþykki þá.

1. Söluaðili

Leir Stúdíó ehf. Kennitala: 670726-0370 VSK-númer: 162899

Leir Stúdíó ehf. er íslenskt einkahlutafélag með aðsetur í Reykjavík á Íslandi. Lóló Butik er eingöngu netverslun og rekur ekki verslun sem opin er almenningi. Heimilisfang, símanúmer og netfang seljanda er að finna neðst á þessari síðu.

2. Verð

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum (ISK) og með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferlinu og kemur fram áður en pöntun er staðfest.

Verð getur breyst án fyrirvara, en það verð sem gilti þegar pöntun var staðfest stendur. Lóló Butik áskilur sér rétt til að hætta við pöntun ef verð eða vörulýsing er augljóslega röng, til dæmis vegna innsláttarvillu, eða ef vara reynist uppseld. Kaupandi fær þá endurgreitt að fullu.

3. Pöntun og greiðsla

Greitt er með greiðslukorti (Visa og Mastercard). Allar færslur eru í íslenskum krónum (ISK).

Kortagreiðslur fara fram á öruggri greiðslusíðu Straums greiðslumiðlunar hf. Kortaupplýsingar eru sendar dulkóðaðar beint til Straums og eru hvorki sýnilegar Lóló Butik né vistaðar hjá okkur.

Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist og kaupandi hefur fengið pöntunarstaðfestingu í tölvupósti.

4. Afhending

Pantanir eru sendar innan Íslands með Póstinum eða Dropp, eftir því hvaða afhendingarmáta kaupandi velur. Þeir afhendingarmátar sem í boði eru og verð þeirra koma fram í greiðsluferlinu áður en pöntun er staðfest.

Pantanir eru að jafnaði afgreiddar innan 1–3 virkra daga frá því að greiðsla berst og áætlaður afhendingartími er 2–5 virkir dagar frá pöntun. Um afhendingu gilda að öðru leyti skilmálar viðkomandi flutningsaðila og Lóló Butik ber ekki ábyrgð á töfum sem verða hjá honum.

5. Réttur til að falla frá kaupum og skil

Kaupandi hefur 14 daga frá því að hann fær vöruna afhenta til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Tilkynna skal um það með tölvupósti til seljanda innan frestsins.

Vörunni skal skilað ónotaðri, óskemmdri og í upprunalegum umbúðum með áföstum merkimiðum. Kaupandi ber kostnað af því að senda vöruna til baka, nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið afgreidd.

Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, innan 14 daga frá því að tilkynning barst. Seljandi getur þó beðið með endurgreiðslu þar til varan hefur borist eða kaupandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka.

6. Gölluð vara

Sé vara gölluð eða hafi hún skemmst í flutningi biðjum við kaupanda að hafa samband sem fyrst, gjarnan með mynd af vörunni. Kaupandi á þá rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu eftir atvikum, í samræmi við lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Seljandi ber sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru.

7. Gjafabréf

Gjafabréf eru send viðtakanda í tölvupósti þegar greiðsla hefur verið staðfest. Þau gilda í fjögur ár frá útgáfudegi og má nota sem greiðslu í netversluninni. Ekki er hægt að skipta gjafabréfi í reiðufé.

8. Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679. Nánari upplýsingar eru á síðunni Persónuvernd.

9. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa og viðskipti í netversluninni gilda íslensk lög, meðal annars lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.

Takist ekki að leysa ágreining getur kaupandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is). Mál sem rísa vegna skilmálanna skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Söluaðili

Leir Stúdíó ehf.

Kt. 670726-0370

VSK-nr. 162899

Netfang: lolo@lolobutik.is