Um okkur
Hugmyndin að Lóló butik kviknaði þegar ég eignaðist barn og fór að versla á það föt. Ég kynntist því hversu hratt börnin stækka og hversu stuttan líftíma sum fötin höfðu. Ég fór að leita eftir flíkum sem hefðu lengri líftíma, af meiri gæðum og tímalausri hönnun svo þær gætu auðveldlega verið notaðar áfram af næstu kynslóðum. Lóló leggur mikið upp úr ullarvörum sem við á íslandi höfum not fyrir allan ársins hring. Markmið okkar er að bjóða upp á hlýlega og persónulega þjónustu og vera með vel valdar og vandaðar vörur sem eru góðar fyrir barnið þitt, umhverfið og framtíðina.