Persónuvernd

Síðast uppfært: 8. nóvember 2026

Leir Stúdíó ehf., kt. 670726-0370, rekur netverslunina Lóló Butik á lolobutik.is og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við hana. Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (almennu persónuverndarreglugerðina, GDPR).

Hvaða upplýsingum söfnum við

Pantanir: nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang, upplýsingar um það sem keypt var, greiðslumáta og upphæð.

Aðgangur: nafn, netfang, vistuð heimilisföng og lykilorð, sem er eingöngu geymt dulritað. Ef þú skráir þig inn með Google fáum við nafn þitt og netfang frá Google.

Póstlisti: netfang, ef þú skráir þig á póstlistann.

Samskipti: það sem þú sendir okkur, til dæmis í tölvupósti.

Notkun vefsins: hvaða síður og vörur eru skoðaðar, hvað er sett í körfu, tegund tækis, hvaðan heimsóknin kom (til dæmis auglýsing, hlekkur eða QR kóði á plakati) og hvort hún endaði í pöntun. Þetta er tengt handahófskenndu auðkenni í vafrakökunni, ekki nafni þínu.

Við tökum hvorki við né geymum kortaupplýsingar. Þær eru slegnar inn á greiðslusíðu Straums greiðslumiðlunar hf.

Tilgangur og heimild til vinnslu

Til að afgreiða og afhenda pantanir, taka við greiðslum og eiga samskipti við þig um þær. Vinnslan er nauðsynleg til að efna samning við þig (b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).

Til að uppfylla lagaskyldur, einkum um bókhald og skattskil (c-liður 1. mgr. 6. gr.).

Til að senda fréttir og tilboð, eingöngu ef þú hefur samþykkt það (a-liður 1. mgr. 6. gr.). Þú getur afturkallað samþykkið hvenær sem er.

Til að tryggja öryggi vefsins og koma í veg fyrir misnotkun, á grundvelli lögmætra hagsmuna (f-liður 1. mgr. 6. gr.).

Til að skilja hvernig vefurinn er notaður og hvaða auglýsingar og kynningar skila sér, með eigin vefgreiningu á grundvelli lögmætra hagsmuna (f-liður 1. mgr. 6. gr.).

Til að mæla og bæta auglýsingar á Facebook og Instagram með Meta Pixel, eingöngu ef þú hefur samþykkt markaðskökur (a-liður 1. mgr. 6. gr.). Þú getur afturkallað samþykkið hvenær sem er undir „Vafrakökur“ neðst á síðunni.

Hversu lengi geymum við upplýsingarnar

Upplýsingar um pantanir og reikninga eru geymdar í sjö ár í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Aðgangsupplýsingar eru geymdar þar til aðganginum er eytt, en það getur þú gert sjálf(ur) á Mínum síðum. Netfang á póstlista er geymt þar til þú afskráir þig.

Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Þeim er aðeins miðlað til aðila sem vinna fyrir okkur að því marki sem nauðsynlegt er:

Straumur greiðslumiðlun hf. vegna kortagreiðslna. Flutningsaðilar (Pósturinn og Dropp) fá nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang til að afhenda sendingar. Hýsingaraðilar vefsins og gagnagrunnsins (Vercel og Neon). Gögnin eru hýst í Evrópu. Meta Platforms Ireland Ltd., eingöngu ef þú hefur samþykkt markaðskökur: hvaða síður og vörur eru skoðaðar og kaup (vörur og upphæð). Við kaup fær Meta einnig netfang, símanúmer og póstnúmer, dulkóðuð (hash) áður en þau eru send, svo hægt sé að tengja kaupin við auglýsingu. Meta vinnur einnig með upplýsingarnar í eigin tilgangi samkvæmt eigin persónuverndarstefnu (facebook.com/privacy/policy).

Séu upplýsingar fluttar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið er það gert á grundvelli ákvörðunar um fullnægjandi vernd eða staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar ESB.

Vafrakökur

Nauðsynlegar vafrakökur halda þér innskráðum/innskráðri, muna innkaupakörfuna, valið tungumál og val þitt um vafrakökur (geymt í eitt ár).

Eigin vefgreining: vafrakökurnar lb_vid (handahófskennt auðkenni vafrans, 13 mánuðir), lb_visit (núverandi heimsókn, 30 mínútur) og lb_src (síðasta auglýsing eða hlekkur sem þú komst frá, 30 dagar). Upplýsingarnar fara ekki til þriðja aðila. Við notum einnig Vercel Web Analytics, sem notar engar vafrakökur.

Markaðskökur, eingöngu með þínu samþykki: Meta Pixel setur vafrakökurnar _fbp og _fbc (90 dagar). Án samþykkis er Meta Pixel ekki hlaðið.

Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er undir „Vafrakökur“ neðst á síðunni, eða eytt vafrakökum í stillingum vafrans.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu þeirra eða andmæla henni, og fá þær afhentar á tölvutæku formi. Sendu okkur tölvupóst á netfangið hér að neðan til að nýta þessi réttindi.

Ef þú telur að vinnsla okkar brjóti gegn persónuverndarlögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík (personuvernd.is).

Breytingar

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf birt á þessari síðu.

Söluaðili

Leir Stúdíó ehf.

Kt. 670726-0370

VSK-nr. 162899

Netfang: lolo@lolobutik.is